Verðmiði kominn á Windows Vista 30. ágúst 2006 12:06 Frá kynningu á Windows Vista í júlí í fyrra. Mynd/Getty Images
Bandaríska netverslunin Amazon.com verðleggur Windows Vista, nýjasta stýrikerfi hugbúnaðarrisans Microsoft, á allt frá 399 til 199 bandaríkjadölum, jafnvirði tæplega 30.000 króna. Verðmiði hefur ekki áður verið á stýrikerfinu sem ekki enn er komið út en búast má við að stýrikerfið verði nokkuð dýrara komið hingað til lands með álögðum kostnaði. Netverslunin er þegar farin að taka niður pantanir fyrir stýrikerfinu þótt nokkuð sé í útgáfudag. Fyrirtækjaútgáfa Windows Vista er væntanleg á haustdögum og er hún næstdýrust, eða á 299 dali, jafnvirði tæplega 20.000 króna. Ódýrasta útgáfa nýja stýrikerfisins, Windows Vista Basic og er fyrir einkatölvur, er svo fyrirhuguð snemma á næsta ári. Microsoft bindur miklar vonir við að hinn almenni tölvunotandi kaupi Windows Vista Premium, sem Amazon verðleggur á 239 dali. Sú útgáfa stýrikerfisins býður upp á ýmsa afþreyingamöguleika, meðal annars upptöku á sjónvarpsefni. Dýrasta útgáfan er hins vegar Windows Vista Ultimate. Sú útgáfa, sem kostar 399 dali hjá Amazon.com eða tæpar 30.000 krónur, er hugsuð fyrir þá sem vilja stunda fjarvinnu heiman að frá sér en haldið öllum afþreyingamöguleikunum á sama tíma. Að sögn forsvarsmanna Amazon.com miðast verðið við kaup á stýrikerfinu en uppfærslur á eldri stýrikerfum eru talsvert ódýrari.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira