Svipað og Heiðmerkurhringurinn 20. apríl 2005 00:01
Hjólaferðir eru sífellt vinsælli meðal Íslendinga og um miðjan júní verða farnar hjólaferðir að Gardavatni með ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn. Svæðið við Gardavatn er mjög vinsælt meðal hjólreiðamanna og hefur heimsmeistaramótið í fjallahjólreiðum meðal annars verið haldið þar. "Ég myndi segja að þessar tvær ferðir séu fyrir alla. Við hjólum í þrjár til fimm klukkustundir á hverjum degi með hléum og nestispásum og hafa ferðalangar seinni partinn alveg lausan fyrir sig. Þeim sem finnast ferðirnar léttar geta þá tekið sér aukahjólaferðir um svæðið," segir Alda Jónsdóttir leiðsögumaður sem er fararstjóri í ferðunum ásamt Þuríði Gunnarsdóttur. Í báðum ferðunum er flogið beint með Úrval-Útsýn til Feneyja og þaðan tekin rúta á hótelið Poiano sem er fjögurra stjarna. Á hótelinu er góð líkamsræktaraðstaða, staðsett í göngufæri frá Gardavatni. Hjólaðar verða fjölbreyttar leiðir á flatlendi og í hlíðum fjallsins Monte Baldo og gamli bærinn í Sirmioni sem er frá 13. öld verður skoðaður svo eitthvað sé nefnt. "Við brjótum hjólreiðarnar aðeins upp með því að fara upp með kláf á Monte Baldo-fjallið og finnum síðan skemmtilegar leiðir niður. Við ætlum að halda hópinn fyrri part dags þannig að fólk fær líka skemmtilegan félagsskap út úr ferðinni. Þessar ferðir eru mjög góðar fyrir til dæmis hjón þar sem öðrum aðilanum finnst gaman að hreyfa sig en hinum langar að slappa af. Það er margt hægt að gera á hótelinu þannig að sá sem vill ekki hreyfa sig getur slappað af við sundlaugarbakkann í sólinni á meðan hinn hjólar," segir Alda en hitinn á þessum tíma er um 20° C. "Við hjólum með litla bakpoka með nesti og fötum og þetta er í raun eins og að hjóla Heiðmerkurhringinn. Við erum ekki að fara hinum megin á hnöttinn. Við mælum með að fólk taki með sér breiðan skala af fötum. Fólk á helst að klæðast mörgum þunnum flíkum til að tempra hitann og ekki vera í bómullarfötum næst sér heldur æfingafötum úr gerviefni. Fólk getur leigt sér hjól á staðnum eða komið með sitt eigið," segir Alda en þær Þuríður hafa mikla reynslu af hjólreiðum. "Ég er lærður leiðsögumaður og var einu sinni fararstjóri í hjólaferð til Noregs. Þuríður hefur notað hjólið mikið til ferðalaga sem og dags daglega. Við erum mjög áhugasamar um hjólreiðar og Gardavatn er náttúrulega draumur allra hjólreiðamanna. Heimsmeistaramótið í fjallahjólreiðum hefur verið haldið á þessu svæði og þangað kemur hjólreiðafólk frá ýmsum löndum á ári hverju. Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt svæði og tilvalið fyrir Íslendinga þar sem sífellt fleiri krefjast ferða sem felast ekki bara í því að fara niður á strönd heldur vill fólk hafa eitthvað fyrir stafni og vera með góða samvisku í ferðalaginu." Ef ferðirnar í sumar ganga vel hjá Þuríði og Öldu verða þær jafnvel með sérsniðnar ferðir á næsta ári þar sem fólk getur komið að æfa sig og verið í skemmtilegu umhverfi. Kynningarfundur vegna hjólaferðanna verður haldinn í húsakynnum Úrvals-Útsýnar, Lágmúla 4, þriðjudaginn 27. apríl klukkan 18.00. Skráning á fundinn þarf að berast á netfangið siggigunn@uu.is fyrir 25. apríl. Létt ferð: Létt ferð: Hvenær: 15. til 22. júní. Fyrir hverja: Alla sem geta setið á hjóli og hjólað í þrjá til fimm tíma með hléum. Meðal létt ferð: Hvenær: 22. til 29. júní. Fyrir hverja: Þeir sem treysta sér í brekkur og aðeins meira krefjandi ferð.
Ferðalög Mest lesið Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Tónlist „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Lífið Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Lífið Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira