Syngja á afmælistónleikum í London 6. mars 2005 00:01
Karlakórinn Fóstbræður ætlar að verða við beiðni Sameinuðu þjóðanna um að koma fram á tónleikum í Royal Albert Hall í Lundúnum þann 16. október í haust. Efnt verður til tónleika í tilefni 60 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna og munu fjölmargir heimsfrægir listamenn úr flestum heimsálfum koma fram en þó er það ekki að fullu frágengið hvaða listamenn það verða. Sony-fyrirtækið ætlar að gefa út DVD-disk með upptökum frá tónleikunum og dreifa þeim um allan heim og mun ágóðinn renna til góðgerðastarfa. Einnig mun breska sjónvarpsstöðin BBC sýna beint frá tónleikunum og svo verður völdum köflum dreift til sjónvarpsstöðva víða um heim. Það var því ekki annað að gera fyrir blaðamann en að spyrja Eyþór Eðvarðsson formann Fóstbræðra hvort þeir væru búnir að "meika" það. "Hógværð er nú aðalsmerki okkar Fóstbræðra en dæmi nú hver fyrir sig þegar þér er boðið að koma fram í Royal Albert Hall á tónleika sem fara svo í dreifingu á heimsvísu."
Tónlist Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira