Rosalega gott að reykja í þeim 4. ágúst 2004 00:01 "
Ég hef nú svo sem ekki keypt mér neitt nýlega en ég fékk rosa töff támjóa Rockabilly-skó í jólagjöf í fyrra frá kærustunni minni," segir Henrik Baldvin Björnsson, söngvari hljómsveitarinnar Singapore Sling. "Ég nota þessa támjóu skó rosalega mikið og er búinn að þurfa að láta sóla þá einu sinni. Ætli ég þurfi ekki að gera það aftur eftir svona hálft ár sökum notkunar. Þetta eru gæðaskór - ítalskt og gott í þessu og þeir eru voða töff. Ég nota þá mikið þegar ég er að spila og ganga. Síðan er voðalega gott að reykja sígarettur í þessum skóm - alveg extra-gott. Ég reyki mikið þegar ég klæðist þessum skóm, þeir hafa greinilega þessi áhrif á mig. Mér finnst það bara fínt," segir Henrik og er alls ekki á því að segja skilið við skóna til að hætta þessum ósið. "Ég stefni ekki að því að hætta að nota skóna og ég stefni ekki heldur að því að hætta að reykja." En er samt ekki allt að gerast hjá Singapore Sling þrátt fyrir allar reykingarnar? "Það má svo sem segja það," segir Henrik af hógværð en platan Life is Killing my Rock n Roll er væntanleg í verslanir hér á Klakanum. "Ætli við förum ekki að túra í haust, kannski í október. Þá tökum við mánaðartúr í Ameríku. Reyndar eigum við að spila á Airwaves-hátíðinni en ef túrinn lendir á sama tíma og hátíðin þá þarf hátíðin því miður að víkja," segir Henrik sem væntanlega tekur Rockabilly-stígvélin með í túrinn.
Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira