Selur allt bókasafnið sitt 16. júlí 2004 00:01 "
Fólk getur komið og keypt bækur úr safni uppáhalds söngvarans, stjórnmálamannsins eða skáldsins. Sem dæmi selur Einar Kárason bækur úr safninu sínu, Nylon stelpurnar, Jónsi og Jónína Bjartmarz," segir Kristjón Kormákur Guðjónsson, framkvæmdastjóri Hróksins en félagið efnir til bókamarkaðar í dag og á morgun á útitaflinu í Lækjargötu til styrktar barnastarfi félagins. Kristjón segir hugmyndina hafa kviknað þegar Hrafn Jökulsson ákvað að gefa allt bókasafnið sitt til styrktar starfinu. "Við ákváðum í framhaldinu að hafa samband við fleiri einstaklinga sem allir hafa tekið mjög vel í þetta. Ef þessi fyrsta helgi gengur vel er markaðurinn kominn til að vera enda höfum við ekki haft tíma til að hringja í nándar nærri alla sem gætu lagt okkur lið." Féð sem safnast mun allt renna í barnastarf Hróksins sem félagið einbeitir sér að. "Við hættum þátttöku í Íslandsmótinu til að beita okkur á þessu sviði. Í haust munum við halda í hringferð í kring um landið þar sem við gefum öllum 3. bekkingum "Skák og mát" eins og við höfum gert undanfarin ár." Kristjón segir árangurinn ekki láta á sér standa því skákáhuginn sé sífellt að aukast.
Menning Skák Mest lesið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Lífið samstarf „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira