Góð grillveisla 18. júní 2004 00:01
Hugmyndaflug er besta hráefnið í góða veislu og ekki sakar að kveikja einnig undir sköpunargáfunni og leikgleðinni. Því miður er það svo að ekki er hægt að treysta á sólskin og veðurblíðu hérna á Íslandinu góða og því sakar ekki að undirbúa veisluna þannig að hægt sé að færa hana inn eða hreinlega að setja saman veisluna samdægurs þegar vel viðrar. Auðvelt er að taka borð og stóla að innan og setja út í garð, henda dúkum yfir borðin og setja á þau falleg blóm og kerti. Hægt er að notast við stellið úr eldhússkápnum en gott getur verið að eiga matarstell og glös úr plasti ef svo ber undir. Það er góð hugmynd að eiga rúllu af pappadúk sem hægt er að klippa til og setja á borðin og börnin geta dregið fram liti og teiknað á dúkana. Svo er sniðugt að nota umhverfið til að skreyta, flagga fallegum sumarblómum eða notast við trjágreinar eða annað úr garðinum ef veislan er inni við. Maturinn spilar stórt hlutverk í vel heppnaðri veislu og ekki þarf alltaf að grilla kjöt. Hægt er að bjóða upp á einfalda máltíð eins og létta súpu, grillað brauð og grænmeti. Veljið svo gott vín, bjór eða íslenskt vatn og njótið góðrar stundar.
Matur Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira