Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Færð geti víða spillst hratt

Í dag má búast við allhvössum vindi og snjókomu á fjallvegum og heiðum víða um land. Slíkt hríðarástand skapar mjög blind og erfið akstursskilyrði og færð getur spillst hratt.

Veður
Fréttamynd

Él og slyddu­él í dag og önnur lægð á morgun

Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu.

Veður
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

Appel­sínu­gul við­vörun á morgun

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland.

Veður
Fréttamynd

Snjó­koma víða en bjart sunnan heiða

Þó að búast megi við snjókomu með köflum austanlands í dag, og jafnvel lítilsháttar éljum norðan til, verður að mestu bjart sunnan heiða. Aftur á móti eru frosttölur á bilinu 0 til 10 stig í kortunum víða um landið.

Veður
Fréttamynd

Úr­komu­svæði með snjó­komu fer yfir vestur­helming landsins

Útlit er fyrir suðvestan- og sunnanátt á landinu í dag og má víða reikna með vindhraði verði á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu. Þó ber að taka fram að vindhraða verður nokkuð misskipt í dag, bæði milli landshluta og einnig breytilegur með tíma innan sama landsvæðis.

Veður
Fréttamynd

Gular veðurviðvaranir á Austur­landi

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Austurlandi síðdegis í dag. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem gætu staðbundið farið yfir þrjátíu metra á sekúndu.

Veður
Fréttamynd

Hvöss austan­átt fylgir all­djúpri lægð í dag

Í dag er spáð austan fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu syðst. Gul viðvörun er enn í gildi til hádegis á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hvassviðris og hríðar. Alldjúp lægð fer austur fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir hvöss austanátt við suðurströndina en kaldi eða strekkingur annars staðar.

Veður
Fréttamynd

Hitinn að skríða yfir frost­mark sunnan heiða

Hægt vaxandi austanátt er ríkjandi í dag með stöku éljum austanlands og við suðurströndina en skýjað með köflum og þurrt í öðrum landshlutum. Frost á bilinu 2 til 12 stig en dregur úr því seinnipartinn.

Veður
Fréttamynd

Herðir á frosti í kvöld

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu en eitthvað hvassara austast á landinu.

Veður
Fréttamynd

Snjó­koman náði ekki yfir Hellisheiðina

Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. 

Veður