Innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg munu bitna á viðkvæmustu hópunum að mati fyrrverandi fagstjóra sem telur lítilsvirðingu fólgna í því að tala um annað. Í kvöldfréttum verður rætt við starfsmann sem missti vinnuna í gær og farið yfir málið. Innlent 26.8.2026 18:12
Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Bandaríski fáninn hefur verið dreginn í hálfa stöng fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna í Reykjavík til að heiðra minningu Dolly Parton. Innlent 26.8.2026 17:36
Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Fjölmiðlanefnd hefur sektað Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, um 500 þúsund krónur fyrir að skrá hlaðvarpið ekki sem fjölmiðil. Ákvörðunin kemur rúmum tveimur mánuðum eftir að ráðuneyti Loga Einarssonar greindi frá því að fyrirhugað væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld. Innlent 26.8.2026 16:24
Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni. Innlent 26.8.2026 15:11
Hvað gerist ef það verður jafnt? Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. Innlent 26.8.2026 14:44
Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum „Við sjáum ekki undir hvaða kringumstæðum hægt er að fá ítarlegri sérlausn en Finnar,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamataka, í nýjasta þætti Vísis að viðræðum. Hún telur einu leiðina til þess að íslenskir bændur geti fengið eitthvað fyrir sinn snúð innan Evrópusambandsins sé með undanþágu frá allri landbúnaðarstefnu ESB, sem sé vægast sagt hæpið. Innlent 26.8.2026 14:41
Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Landsmenn ganga að kjörborðinu á laugardaginn og greiða atkvæði um hvort að Ísland eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðeins eru þrír dagar í að kjörstaðir um land allt opni en flestir þeirra opna klukkan níu og verður lokað klukkan 22. Vísir hefur tekið saman nokkur helstu atriðin varðandi atkvæðagreiðsluna og framkvæmd hennar. Innlent 26.8.2026 14:01
Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Þrjátíu og tveimur starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem fengu boð um ný eða breytt störf við hópuppsögn í gær var boðið lakari kjör að sögn formanns Sameykis sem segir starfsmennina hafa fengið afar skamman tíma til að ákveða næstu skref. Innlent 26.8.2026 12:02
Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Tvöfalt fleiri eru andvígir loðdýrarækt en hlynntir henni samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir Samtök um dýravelferð á Íslandi. Andstaða við loðdýrarækt er sterk meðal kvenna og háskólamenntaðra. Innlent 26.8.2026 11:55
Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir nauðgun á Akureyri árið 2024. Innlent 26.8.2026 11:51
Starfsfólkinu boðin lakari kjör Hádegisfréttir á Bylgjunni eru á sínum stað og eru sagðar klukkan tólf. Þar ber hæst að búist er við því að fyrstu tölur í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði birtar í Suðurkjördæmi um klukkan hálf ellefu á laugardagskvöld. Rætt verður við formann yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður, sem segir forvinnu fyrir talningu þegar hafna. Innlent 26.8.2026 11:32
Grindavík á varaafli Varaaflsvélum hefur verið komið fyrir í Grindavík vegna bilunar í Svartengislínu milli Svartengis og Rauðmels. Skerðanlegur flutningur á Vestfjörðum, Vesturlandi og Suðurlandi hefur verið skertur vegna bilunarinnar. Innlent 26.8.2026 10:13
Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já. Innlent 26.8.2026 08:54
Stútur „með allt í skrúfunni“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og nótt, en verkefnin voru einkum tengd eftirliti með ökumönnum á bílum og bifhjólum sem ýmist óku of hratt, voru í símanum undir stýri, voru án ökuréttinda, fóru yfir á rauðu, eða voru undir áhrifum löglegra eða ólöglegra vímuefna. Innlent 26.8.2026 07:26
Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Biskup Íslands mun flytja að Mosfelli í Mosfellsdal þegar framkvæmdum á íbúðarhúsnæði á staðnum lýkur. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Þjóðkirkjunnar frá því fyrr í ágúst. Innlent 26.8.2026 06:58
Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, segir ekki hægt að verðleggja þyrluútkall en þegar ferðamenn hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi hafi Landhelgisgæslan reynt að innheimta í gegnum tryggingar. Það hafi þó ekki sýnt góðan árangur. Útköllum hefur fjölgað verulega síðustu ár. Innlent 25.8.2026 23:49
Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins. Innlent 25.8.2026 23:23
Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána. Innlent 25.8.2026 22:57
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. Innlent 25.8.2026 22:01
„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá meiri umræðu í borgarstjórn um ákvörðun dagsins um að segja upp tugum starfsmanna borgarinnar og að með skipulagsbreytingum sé þjónusta á leið út úr hverfum borgarinnar. Borgarstjóri segir að við breytingarnar verði ekki þjónusturof og að börn muni fá þjónustu óháð því hvar þau búa. Innlent 25.8.2026 20:59
Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Tugir þúsunda hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fer fram á laugardag. Opnunartími í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hefur verið lengdur nú þegar styttist óðum í kjördag. Innlent 25.8.2026 20:52
„Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp stöfum í dag í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Formaður Sameykis segir að um starfsmenn í framlínustörfum sé að ræða og gagnrýnir uppsagnarferlið harðlega. Innlent 25.8.2026 19:12
Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Borgar- og varaborgarfulltrúar minnihlutans gagnrýna harðlega umfangsmiklar breytingar borgarráðs á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Þau gagnrýna meðal annars tímasetningu ákvörðunarinnar en breytingar af slíkri stærðargráðu eigi ekki að vera teknar á aukafundi. Innlent 25.8.2026 18:29
Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp í dag. Í kvöldfréttum verður rætt við formann Sameykis sem segir uppsagnirnar fordæmalausar og gagnrýnir fyrirkomulagið. Þá mætast þau Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar í beinni og ræða aðgerðirnar. Innlent 25.8.2026 18:11
Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Fyrsta háskólasamstæða landsins tók til starfa undir nafni Háskóla Íslands 1. júlí 2026 en það var í kjölfar þess að mánuði fyrr voru samþykktar á Alþingi breytingar á lögum um opinbera háskóla sem fólu í sér heimild Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum til að stofna háskólasamstæðu. Innlent 25.8.2026 16:30
Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli „Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum. Innlent 25.8.2026 16:25
Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Míla hefur lokið mikilvægu skrefi í orkuskiptum fjarskiptainnviða landsins með uppsetningu rafgeymakerfis, sólarsella og vindmyllu á fjarskiptastaðnum Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Slórfell var síðasti fjarskiptastaður fyrirtækisins þar sem dísilrafstöð hafði verið í samfelldum rekstri allan sólarhringinn, svokölluð síkeyrsla. Með nýju orkukerfi hefur tekist að draga verulega úr olíunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda. Innlent 25.8.2026 16:09
Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Skipulagsbreytingar Reykjavíkurborgar leiða til uppsagna 86 starfsmanna borgarinnar. Af þeim fá 32 boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður. Innlent 25.8.2026 15:33
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. Innlent 25.8.2026 15:11
„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á. Innlent 25.8.2026 14:51