Fréttir

Niður­sveiflan á vinnu­markaði sé mjög djúp

Reiknað er með að atvinnuleysi mælist yfir fimm prósentum í febrúar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir skýr merki um töluverða kólnun á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er meira en undanfarin ár og fá störf eru í boði.

Innlent

„Hvaðan kom þetta fyrir­bæri eigin­lega hér inn á þing?“

Hart var tekist á um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra í þinginu í gærkvöldi, líkt og svo oft undanfarið. Ráðherra sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks slá skjaldborg um ríkustu fjölskyldur landsins, eigendur útgerða, en að ljóst væri hvar þeir stæðu þegar kæmi að kjörum fátækasta fólksins í landinu. „Ömurlegt!“ var kallað úr þingsal og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, svaraði ráðherra fullum hálsi úr ræðustól, svo fullum að forseti minnti þingmenn á að gæta orða sinna að lokinni ræðu hans.

Innlent

Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar

Rútubílstjóri hjá ÍS-Travel hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa keyrt yfir konu með þeim afleiðingum að hún slasaðist alvarlega. Hann var dæmdur til að greiða konunni 1,3 milljónir króna í miskabætur.

Innlent

Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar ör­yrkja

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur þungar áhyggjur af því að myndast hafi öfugur hvati fyrir atvinnuþátttöku launafólks sem greint hefur verið með tímabundna örorku. „Ef smyrja á þessu yfir allt,“ segir Vilhjálmur og vitnar í glæný gögn.

Innlent

Reyna aftur á morgun

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað.

Erlent

Gengu tíu kíló­metra til að geta óskað eftir að­stoð

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð og björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki komu fjórum ferðamönnum til aðstoðar í gær sem höfðu fest bíla sína í Mælifellsdal. Fólkið gekk tíu kílómetra í 18 stiga frosti til að komast í símasamband til að láta vita af sér.

Innlent

Á­kærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu

Réttarhöld hefjast á morgun yfir kærasta Kerstin G, sem lést af völdum ofkælingar á fjallinu Grossglockner í Austurríki fyrir um mánuði síðan. Ákæruvaldið segir að þar sem kærastinn hafi verið mun reynslumeiri en konan, hafi hann gerst sekur um alvarlega vanrækslu þegar hann yfirgaf hana á fjallinu og snéri ekki aftur eða leitaði aðstoðar í tíma.

Erlent

Maðurinn sem lýst var eftir fundinn

Maðurinn sem lögregla lýsti eftir í gær er fundinn. Í tilkynningu lögreglu í gær var hann beðinn að hafa samband eða fólk beðið að hafa samband þekkti það til hans. Ekki kom fram í tilkynningu hvers vegna lögregla vildi ná tali af manninum.

Innlent

Bein út­sending: Um­hverfið í hnatt­rænu sam­hengi

Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið standa fyrir málþinginu Umhverfið í hnattrænu samhengi þar sem kynntar verða helstu niðurstöður nýrrar skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, GEO-7. Skýrslan veitir heildstæða mynd af stöðu umhverfismála á heimsvísu og dregur fram lykiláskoranir og lausnir sem tengjast loftslagsbreytingum, hnignun vistkerfa, mengun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Hægt verður að fylgjast með í beinni á Vísi.

Innlent

Snjó­koman náði ekki yfir Hellisheiðina

Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. 

Veður

Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir

Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segist engar skoðanir hafa á nýjum eiganda að hundrað prósenta hluta í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík. Sá hafi áður átt hlut í verkefninu, engin eðlisbreyting hafi átt sér stað og telur sveitarstjórinn að bjartir tímar séu framundan með uppbyggingunni.

Innlent

Getur ekki séð að „heims­enda­spár gagn­rýn­endanna“ séu að rætast

Nýtt Reykjavíkurmódel í leikskólamálum var kynnt í dag. Leikskólastjórar, sem kröfðust breytinga fyrr í mánuðinum segja nýja kerfið hafa bæði kosti og galla. Formaður Eflingar segir tillögurnar jákvæðar, loks sé verið að grípa til aðgerða sem eru bæði í þágu starfsmanna leikskólanna en einnig þeirra á almennum vinnumarkaði.

Innlent

„Al­gjör­lega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undan­farin ár“

Með nýju Reykjavíkurmódeli í leikskólamálum gætu leikskólagjöld lækkað um nokkur þúsund krónur á mánuði hjá ákveðnum barnafjölskyldum í Reykjavík á meðan aðrir foreldrar gætu þurft að greiða umtalsvert meira. Markmiðið er meðal annars að bæta mönnun, starfsaðstæður og faglegt starf á leikskólum. Oddviti Vinstri grænna segir frekari aðgerðir í farvatninu í leikskólamálum, staðan undanfarin ár hafi verið óboðleg. Formaður Samtaka foreldra leikskólabarna segir vonbrigði að borgaryfirvöld varpi með þessu frekara samviskubiti yfir á foreldra.

Innlent

„Þetta hefði ekki þurft að fara svona“

Maður sem annaðist aldraða, veika systur sína um árabil segir það hafa verið tilgangslausa þrautargöngu að reyna að fá hjúkrunarrými fyrir hana síðustu árin. Hann fór með hana sárveika á Landspítalann síðasta haust þar sem hún lést nokkrum dögum síðar eftir að matur stóð í henni.

Innlent

Skelfi­leg enda­lok á Land­spítalanum

Fjöldi aðstandenda aldraðra lýsir mikilli þrautagöngu við að koma fólki í viðeigandi hjúkrunarrými. Í kvöldfréttum hittum við mann sem um árabil annaðist veika og aldraða systur sína. Hvorki gekk né rak að fá hjúkrunarrými fyrir hana. Hún endaði sárveik á Landspítalanum þar sem hennar biðu skelfileg örlög. Við heyrum sögu systkinanna í fréttatímanum.

Fréttir