Fréttir

Hvergi af baki dottinn og fer með á­minninguna fyrir Lands­rétt

Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson ætlar ekki að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Hann ætlar með málið fyrir Landsrétt og eftir atvikum alla leið í Hæstarétt.

Innlent

Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna frá og með klukkan 18 í kvöld, vegna norðanáhlaups sem spáð er næsta sólarhringinn.

Veður

Höfuð­borgar­svæðið bætist í hópinn

Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir alla landshluta. Fyrstu gulu viðvaranirnar tóku gildi fyrr í dag, á Norðurlandi og Austurlandi að Glettingi, og hinar munu jafnt og þétt taka gildi á næstu klukkutímum.

Veður

Gæti komið til lokana á vegum

Heilmikið viðbragð er hjá Vegagerðinni vegna veðurviðvarana á morgun þar sem von er á vetrarverði þó júní sé runninn upp. Komið gæti til vegalokana á Suðausturlandi.

Innlent

Sel­foss­kirkju­garður að fyllast

Fimm til sex ár eru í að Selfosskirkjugarður verði fullnýttur og hefur Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra Árborgar, verið falið að funda með sóknarnefnd Selfosskirkju um mögulega framtíðarstaðsetningu nýs kirkjugarðs.

Innlent

Brott­vísun Oscars frestað

Brottvísun Oscars Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs sem til hefur staðið að senda úr landi, verður frestað þar til búið er að fara yfir umsókn hans um íslenskan ríkisborgararétt.

Innlent

Á­minning Höskuldar stendur

Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson fór fýluferð í dómsal þegar hann reyndi að fá áminningu frá Úrskurðarnefnd lögmanna hnekkt. Hann var áminntur fyrir að halda eftir fjármunum erfingja í dánarbúi og að villa um fyrir úrskurðarnefndinni.

Innlent

Skjöl stað­festa að Tice var í haldi Assad-liða

Áður óséð skjöl hafa loksins staðfest að bandaríski blaðamaðurinn Austin Tice var handsamaður af stjórnvöldum Bashars al-Assad, fyrrverandi forseta Sýrlands. Hann hvarf nærri Damascus, höfuðborg landsins, í ágúst 2012 en Assad-liðar höfnuðu því ítrekað að hafa hann í haldi.

Erlent

Slæmt að fá hret á varp­tíma

Vegir gætu lokast og samgöngur raskast þegar vonskuveður gengur yfir landið í dag og á morgun. Fuglafræðingur segir hretið sem spáð er geta haft veruleg áhrif á fuglalífið þar sem ungar séu nú margir nýskriðnir úr hreiðrum.

Innlent

Verða boðaðir á fund lög­reglu

Skipuleggjendur stórtónleika FM95BLÖ í Laugardalshöll um helgina þar sem mikill troðningur átti sér stað verða boðaðir á fund lögreglu í vikunni. Skipuleggjendur hafa ekki gefið kost á viðtölum í dag en formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara gagnrýnir þá harðlega og segir heppni að enginn hafi dáið.

Innlent

Þor­leifur keilari hvergi nærri af baki dottinn

Þorleifur Jón Hreiðarsson keilari hefur ekki haft erindi sem erfiði en lögmaður hans sendi erindi til Keilusambandsins (KLÍ) þar sem kvartað var að fram hjá honum hafi verið gengið í vali á landsliði öldunga.

Innlent

Á­hugi á Bandaríkja­reisum snar­minnkar

Áhugi Íslendinga á ferðalögum til Bandaríkjanna hefur dvínað eftir að Donald Trump sneri aftur í embætti forseta Bandaríkjanna í upphafi árs. Áhuginn hefur dregist mest saman hjá kjósendum Samfylkingar og Viðreisnar.  

Innlent

Vill sam­eina þjóðina um hernaðar­upp­byggingu

Bretar ætla að fjölga kjarnorkuknúnum kafbátum sínum og gera aðrar breytingar sem ætlað er að auka getu ríkisins til að heyja nútímastríð. Keir Starmer, forsætisráðherra, segist ætla að auka fjárútlát til varnarmála í þrjú prósent af landsframleiðslu en vill ekki segja hvernær ná á þeim áfanga.

Erlent

For­dæmir vinnu­brögð njósnaranna

Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður segir að PPP, félagið sem njósnaði um hóp fólks haustið 2012, hafi kynnt starfsemi sína sem löglega upplýsingaöflun. Hann hafi aldrei fengið neinar upptökur afhentar. Þá hafi ekki verið greiddar 33 milljónir fyrir upplýsingaöflunina, heldur átta. Hann hafi ekkert með leka út úr embætti sérstaks saksóknara að gera.

Innlent