„Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Atvinnuvegaráðherra segir að ekki hafi verið skoðað að stöðva eða setja hömlur á uppbyggingu sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Ráðherra fær fulltrúa náttúruverndarsamtaka á fund til sín á morgun. Innlent 13.10.2026 13:02
Laxeldi á Seyðisfirði Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða starfsemi Kaldvíkur í Seyðisfirði. Það er eðlilegt enda snertir málið framtíð fjarðarins, atvinnulíf, náttúru og samfélag. Skoðanir eru skiptar og mikilvægt að ólík sjónarmið fái að heyrast. Skoðun 13.10.2026 12:00
Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta „Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. Innlent 12.10.2026 13:52
Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins. Innlent 5. október 2026 12:01
Mennirnir sem létust voru feðgar Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 4. október 2026 13:53
„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir. Innlent 4. október 2026 11:56
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Innlent 4. október 2026 09:38
Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. Innlent 3. október 2026 12:00
Austurland margborgar sig Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári. Skoðun 1. október 2026 13:31
Hvað veistu um… Djúpavog? Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg. Lífið 21. september 2026 20:02
„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum. Innlent 20. september 2026 10:02
Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt. Innlent 16. september 2026 20:00
Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Ökumaður bifreiðar sem fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og lenti framan á öðrum bíl á Fjarðarheiði í desember er talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Karlmaður á níræðisaldri í bílnum sem ekið var framan á lést. Innlent 16. september 2026 12:42
Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Heilbrigðisráðherra hefur skipað Þórörnu Gró Friðjónsdóttur forstjóra Heilibrigðisstofnunar Austurlands (HSA) til fimm ára. Þórarna var áður framkvæmdastjóri mannauðs og hefur verið settur forstjóri frá því í sumar. Innlent 14. september 2026 15:50
„Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. Innlent 14. september 2026 12:01
Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Yfirhafnarstjóri í Múlaþingi lýsir hruni í komum skemmtiferðaskipa og segir það þungt högg fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Skipafélög beini skipum sínum annað vegna hringlandaháttar í gjaldtöku. Innlent 13. september 2026 22:01
„Þetta er fullkomið áfall“ Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum. Innlent 12. september 2026 14:35
Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Er það táknrænt eða tilviljun að ríkisvaldið tók hafnarsvæði Seyðisfjarðar, siglingaleið að samevrópskri ferjuhöfn undir mengandi stóriðju þann 11.09.2026? Skoðun 12. september 2026 14:01
Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Félagið Kaldvík AS hefur fengið rekstrar- og starfsleyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi frá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun í Seyðisfirði. Í tilkynningu til Kauphallar segir forstjóri það mikilvægan áfanga. Viðskipti innlent 11. september 2026 12:45
Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu. Innlent 2. september 2026 19:24
Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla. Innlent 1. september 2026 15:14
Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis. Innlent 28. ágúst 2026 10:12
Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Karlmaður á fertugsaldri sem lést þegar hann féll út í Jökulsá á Brú í Stuðlagili í vikunni er sagður hafa verið pólskur. Pólskur fjölmiðill greinir frá þessu. Innlent 27. ágúst 2026 10:24
Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. Innlent 26. ágúst 2026 22:27