Innlent

Bein út­sending: Kynna nýtt meiri­hluta­sam­starf í Reykja­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Allar líkur eru á að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, verði á fundinum kynnt sem næsti borgarstjóri Reykjavíkur.
Allar líkur eru á að Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, verði á fundinum kynnt sem næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson, oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík, munu kynna nýtt meirihlutasamstarf flokkanna í borgarstjórn á fréttamannafundi í Viðey um klukkan 11:10 í dag.

Flokkarnir tryggðu sér samtals tólf sæti í borgarstjórn – Sjálfstæðisflokkur níu, Viðreisn tvö og Framsókn eitt – í borgarstjórnarkosningunum sem fram fóru 16. maí síðastliðinn.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara sem birtist í fréttinni þegar nær dregur. Þá verður sömuleiðis hægt að fylgjast með nýjustu tíðindum í vaktinni að neðan. Ef  hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni. 


Tengdar fréttir

Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta

Náðst hefur samkomulag milli oddvita Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að mynda meirihluta í Reykjavíkurborg. Þetta herma heimildir fréttastofu. Miðflokkurinn hefur ekkert heyrt í oddvita Sjálfstæðisflokksins síðan á föstudag. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Viðey upp úr klukkan ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×